• Fréttir
  • Tónlistin
    • Útgáfa
      • Freyjukórinn
      • Kvk Akureyrar
      • Kvennakór Suðurnesja
      • Norðurljós
      • Kvk Kaupmannahöfn
      • Léttsveit Rvíkur
      • Kvk Ljósbrá
      • Gospelsystur
      • Seljur
      • Lillukórinn
      • Ymur
      • Kvk Garðabæjar
      • Kvk Hafnarfjarðar
      • Jórukórinn
      • Kvk Reykjavíkur
      • Vox Feminae
    • Landsmót
      • Árið 2020 - Reykjavík
      • Árið 2017 - Ísafjörður
      • Árið 2014 - Akureyri
      • Árið 2011 - Selfoss
      • Árið 2008 - Hornafjörður
      • Árið 2005 - Hafnarfjörður
      • Árið 2002 - Reykjanesbær
      • Árið 1999 - Siglufjörður
      • Árið 1997 - Reykholt í Borgarfirði
      • Árið 1995 - Reykjavík
      • Árið 1992 - Ýdölum
    • Aðildakórar
      • Fyrrverandi aðildarkórar
    • Heiðursviðurkenningar
      • Hrönn Hjaltadóttir
      • Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
      • Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
      • Gróa María Þorvaldsdóttir
      • Sigríður Anna Ellerup
      • Guðrún Ósk Sæmundsdóttir
      • Heiða Gunnarsdóttir
      • Margrét Pálmadóttir
      • Margrét Bóasdóttir
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
      • Stjórn Gígjunnar 2018-2019
      • Stjórn Gígjunnar 2017-2018
      • Stjórn Gígjunnar 2016-2017
      • Stjórn Gígjunnar 2015-2016
      • Stjórn Gígjunnar 2014-2015
      • Stjórn Gígjunnar 2013-2014
      • Stjórn Gígjunnar 2012-2013
      • Stjórn Gígjunnar 2011-2012
      • Stjórn Gígjunnar 2010-2011
      • Stjórn Gígjunnar 2009-2010
      • Stjórn Gígjunnar 2008-2009
      • Stjórn Gígjunnar 2007-2008
      • Stjórn Gígjunnar 2006-2007
      • Stjórn Gígjunnar 2005-2006
      • Stjórn Gígjunnar 2004-2005
      • Stjórn Gígjunnar 2003-2004
  • Hafa samband
  • Fréttir
  • Forsíða
  • Hafa samband
  • Tónlistin
    • Útgáfa
    • Landsmót
    • Aðildakórar
    • Heiðursviðurkenningar
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
  • 30074169_1661176133951423_1871409583_o

    Landssamband íslenskra Kvennakóra

  • Freyjukórinn
  • jorukorinn2017(1)
  • Kvennakór Reykjavíkur
  • Vortonleikar_2015_Gugga
  • Kvennakor Gardabaejar 1
  • Cantabile1

Kaffihúsakvöld hjá Freyjukórnum 18. mars

14. mars 2005
Freyjukórinn í Borgarfirði stendur fyrir kaffihúsakvöldi í Logalandi Reykholtsdal föstudagskvöldið 18. mars kl. 20. Stjórnandi Freyjukórsins er Zsuzsanna Budai og flutt verður tónlist úr amerískum kvikmyndum.Frétt frá Freyjukórnum í Borgarfirði
Freyjukórinn í Borgarfirði býður upp á kaffihúsakvöld. Flutt verður amerísk kvikmyndatónlist á 15 ára afmælistónleikum Freyjukórsins í Logalandi Reykholtsdal föstudaginn 18. mars. Dralon hópurinn óviðjafnanlegi mun einnig koma fram með kórnum. Kynnir kvöldsins er Þorvaldur Jónsson, Brekkukoti. Kórstjóri er Zsuzsanna Budai. Einsöngvarar eru Ásdís Haraldsdóttir, Ásta Kristín Guðmundsdóttir, Guðrún Björk Friðriksdóttir, Inga Vildís Bjarnadóttir, Margrét Jóhannsdóttir, og Þórunn Pétursdóttir. Undirleikarar með kórnum eru Steinunnn Árnadóttir, Haukur Gíslason, Eva Ritter og Lára Kristín Gísladóttir. Miðar seldir við innganginn. Miðaverð kr. 1500 fyrir fullorðna. Húsið opnar kl 20:00. Allar nánari upplýsingar um tónleikana gefur formaðurinn; Hrefna Sigmarsdóttir í Húsafelli í síma: 435 1558. Freyjukórinn lofar góði tónlist og skemmtilegri stemningu. Sjáumst hress! Freyjukórinn í Borgarfirði netfang: husafell@husafell.is
Lesa meira

Fréttatilkynning vegna málþings

14. mars 2005
Stjórn Gígjunnar hefur sent frá sér fréttatilkynningu á helstu fjölmiðla landsins. Með fréttatilkynningunni voru senda nokkrar myndir fá málþinginu. Þeir kórar sem hafa áhuga á að fá sendan netfangalista fjölmiðla geta haft samband.Fréttatilkynning send á helstu fjölmiðla landsins
Fyrsta málþing Gígjunnar Gígjan landssamband íslenskra kvennakóra hélt sitt fyrsta málþing 4. mars síðast liðinn í sönghúsinu Domus Vox í Reykjavík. Gígjan var stofnuð 5. apríl 2003 og var aðalmarkmið með stofnun sambandsins að efla starfsemi og samstarf íslenskra kvennakóra og safna og miðla upplýsingum um starfsemi og sögu þeirra. Eins er lögð áhersla á að auka samskipti við erlenda kvennakóra. Sambandið skipa 19 kvennakórar með á annað þúsund konum. Kórarnir starfsa víðsvegar á landinu fyrir utan Kvennakór Kaupmannahafnar sem starfar í Danmörku. Aðildarkórar Gígjunnar sendu fulltrúa á málþingið en eitt megin markmið með málþinginu var einmitt að kalla saman félaga Gígjunnar til þess að stjórnendur og stjórnir þeirra gætu hist og miðlað hugmyndum og upplýsingum sín á milli. Á málþinginu voru haldnir fyrirlestrar um starf kvennakóra. Margrét Bóasdóttir söngkona og kórstjórnandi flutti erindi um kvennakóra fyrr og nú. Margrét J. Pálmadóttir fjallaði um það að vera í kór alla ævi. Steinunn Jónsdóttir félagi í Stúlknakór Reykjavíkur las bréf sem hún skrifaði til borgarstjóra þegar hún var 11 ára gömul. Í bréfinu var hún m.a. að óska eftir stuðningi frá borgaryfirvöldum við kórastarfið. Helga Arnardóttir las texta eftir kórstjórann um gildi þess að syngja í kór og hvers megnugur samhljómur radda getur verið. Einnig stjórnaði Margrét J. Pálmadóttir Stúlknakórnum en söngur hans var hluti af setningu þingsins. Soffía Jakobsdóttir leikari flutti erindi um föður sinn Jakob Tryggvason. Erindið nefndi hún Kellíngarnar hans Jakobs, en Jakob Tryggvason, kórstjóri og organisti stofnaði og stjórnaði kvennakórnum Gígjunni á Akureyri. Sigrún Þorgeirsdóttir kórstjóri fjallaði um norrænt samstarf kvennakóra og sagði m.a. frá norrænu kvennakóramóti sem haldið verður í Västerås í Svíþjóð í september 2005. Ásdís Helga Bjarnadóttir kórkona gerði grein fyrir ýmsum möguleikum í alþjóðlegu söngstarfi og þá sérstaklega ólympíuleikum kóra sem haldnir eru annað hvert ár. Þá var opnað nýtt vefsetur sambandsins, http://www.gigjan.is/. Framundan hjá kvennakórum Gígjunnar er landsmót kvennakóra sem haldið verður í Hafnarfirði dagana 29. apríl til 1. maí. Nánari upplýsingar um starfsemi Gígjunnar veitir Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir stjórnarformaður Gígjunnar í síma: 896 4026.
Lesa meira

Vel heppnað málþing

10. mars 2005
Gígjan hélt sitt fyrsta málþing föstudaginn 4. mars 2005. Málþingið var haldið í sönghúsinu Domus Vox sem í dag hýsir tvo kvennakóra og þrjá stúlknakóra. Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir formaður Gígjunnar átti hugmyndina að málþinginu og hún ásamt stjórn Gígjunnar sá um allan undirbúning. Nokkrir góðir gestafyrirlesarar komu og fluttu erindi og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.
Gígjan hélt sitt fyrsta málþing föstudaginn 4. mars 2005. Málþingið var haldið í sönghúsinu Domus Vox sem í dag hýsir tvo kvennakóra og þrjá stúlknakóra. Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir formaður Gígjunnar átti hugmyndina að málþinginu og hún ásamt stjórn Gígjunnar sá um allan undirbúning. Nokkrir góðir gestafyrirlesarar komu og fluttu erindi og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Aðildarkórar Gígjunnar sendu sína fulltrúa á málþingið en eitt megin markmið með málþinginu var einmitt að kalla saman kóra Gígjunnar til þess að stjórnendur og stjórnir þeirra gætu hist og skipst á skoðunum. Margrét Bóasdóttir söngkona opnaði nýtt vefsetur Gígjunnar í fjarveru menntamálaráðherra sem forfallaðist á síðustu stundu. Menntamálaráðherra sendi góðar kveðjur til íslenskra kvennakóra í landinu og óskaði þeim til hamingju með samtökin og nýja vefsetrið. Stúlknakór Reykjavíkur söng undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur. Fyrirlesarar fluttu skemmtileg erindi við fögnuð gesta og málþinginu lauk á óformlegum umræðum þar sem kórkonur gátu skipst á skoðunum og upplýsingum. Skemmtilegar umræður sköpuðust og viljum við í stjórn Gígjunnar þakka ykkur öllum kærlega fyrir frábæra samverustund.
Lesa meira

Freyjukórinn hefur eignast einkennismerki

24. febrúar 2005
Freyjukórinn í Borgarfirði hefur eignast einkennismerki. Gígjan óskar þeim hjartanlega til hamingju með fallegt merki.Frétt frá Freyjukórnum í Borgarfirði
Freyjukórinn í Borgarfirði stóð fyrir samkeppni meðal kórfélaga um einkennismerki fyrir kórinn á haustmánuðum. Alls bárust um níu tillögur og var ein valin til frekari útfærslu. Höfundur tillögunnar er Ásdís Helga Bjarnadóttir, og var hún útfærð nánar með Guðrúnu Björk Friðriksdóttur. Guðrún og Ásdís eru báðar félagar í Freyjukórnum í Borgarfirði. Stjórnandi Freyjukórsins er Zsuzsanna Budai. Formaður kórsins er Hrefna G. Sigmarsdóttir, netfang: husafell@husafell.is
Lesa meira
  • Fyrri
    • 1
    • ..
    • 180
    • 181
    • 182
    • 183
    • 184
    • 185
    • 186
    • 187
    • 188
    • 189
  • Næsta

Eldri fréttir

  • Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
    31. ágúst 2022
  • Landsmóti frestað til 2023
    25. janúar 2021
  • Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
    10. september 2020
  • Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
    11. júní 2020
  • Landsmóti Gígjunnar frestað
    14. mars 2020
  • Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
    11. febrúar 2020
  • Jólakveðja
    25. desember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
    20. nóvember 2019
  • Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
    19. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
    18. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Léttsveitarinnar
    13. nóvember 2019
  • Kvenna megin
    1. nóvember 2019
  • Aðalfundur Gígjunnar 2019
    28. október 2019
  • Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
    8. maí 2019
  • Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
    3. maí 2019
  • Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs
    29. apríl 2019

Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra

  • Kleppsvegur 132, 104 Reykjavík
  • gigjan2003@gmail.com
  • 847 1724
  • 690403 3660
© 2025 Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra