• Fréttir
  • Tónlistin
    • Útgáfa
      • Freyjukórinn
      • Kvk Akureyrar
      • Kvennakór Suðurnesja
      • Norðurljós
      • Kvk Kaupmannahöfn
      • Léttsveit Rvíkur
      • Kvk Ljósbrá
      • Gospelsystur
      • Seljur
      • Lillukórinn
      • Ymur
      • Kvk Garðabæjar
      • Kvk Hafnarfjarðar
      • Jórukórinn
      • Kvk Reykjavíkur
      • Vox Feminae
    • Landsmót
      • Árið 2020 - Reykjavík
      • Árið 2017 - Ísafjörður
      • Árið 2014 - Akureyri
      • Árið 2011 - Selfoss
      • Árið 2008 - Hornafjörður
      • Árið 2005 - Hafnarfjörður
      • Árið 2002 - Reykjanesbær
      • Árið 1999 - Siglufjörður
      • Árið 1997 - Reykholt í Borgarfirði
      • Árið 1995 - Reykjavík
      • Árið 1992 - Ýdölum
    • Aðildakórar
      • Fyrrverandi aðildarkórar
    • Heiðursviðurkenningar
      • Hrönn Hjaltadóttir
      • Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
      • Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
      • Gróa María Þorvaldsdóttir
      • Sigríður Anna Ellerup
      • Guðrún Ósk Sæmundsdóttir
      • Heiða Gunnarsdóttir
      • Margrét Pálmadóttir
      • Margrét Bóasdóttir
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
      • Stjórn Gígjunnar 2018-2019
      • Stjórn Gígjunnar 2017-2018
      • Stjórn Gígjunnar 2016-2017
      • Stjórn Gígjunnar 2015-2016
      • Stjórn Gígjunnar 2014-2015
      • Stjórn Gígjunnar 2013-2014
      • Stjórn Gígjunnar 2012-2013
      • Stjórn Gígjunnar 2011-2012
      • Stjórn Gígjunnar 2010-2011
      • Stjórn Gígjunnar 2009-2010
      • Stjórn Gígjunnar 2008-2009
      • Stjórn Gígjunnar 2007-2008
      • Stjórn Gígjunnar 2006-2007
      • Stjórn Gígjunnar 2005-2006
      • Stjórn Gígjunnar 2004-2005
      • Stjórn Gígjunnar 2003-2004
  • Hafa samband
  • Fréttir
  • Forsíða
  • Hafa samband
  • Tónlistin
    • Útgáfa
    • Landsmót
    • Aðildakórar
    • Heiðursviðurkenningar
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
  • 30074169_1661176133951423_1871409583_o

    Landssamband íslenskra Kvennakóra

  • Freyjukórinn
  • jorukorinn2017(1)
  • Kvennakór Reykjavíkur
  • Vortonleikar_2015_Gugga
  • Kvennakor Gardabaejar 1
  • Cantabile1

Vox feminae heldur tónleika í Kristskirkju og Hafnarfjarðarkirkju

1. nóvember 2010

O magnum mysterium
 
Tónleikar Vox feminae á allra heilagra messu:

Kristskirkja Landakoti, fimmtudaginn 4. nóvember kl. 20.30

Reykholtskirkja í Borgarfirði, við og eftir messu sunnudaginn 7. nóvember kl. 14.00

Hafnarfjarðarkirkja, miðvikudaginn 10. nóvember kl. 20.30

Lífið er leyndardómur. Allra heilagra messa er Vox feminae sérstaklega hjartfólgin því þá hefur kórinn jafnan haldið dulmagnaða tónleika. Á þeim árstíma skynjum við sterkt sagnaarf kynslóðanna um að einmitt þá séu skilin milli heimanna þynnst.

Að þessu sinni hefur Margrét J. Pálmadóttir, listrænn stjórnandi kórsins, valið til flutnings undurfögur trúarleg verk frá endurreisnartímanum, m.a. eftir tónskáldin Palestrina, Orlando di Lasso og Tomás Luis de Victoria, auk tveggja sálma Þorkels Sigurbjörnssonar sem bera stílbragð liðinna tíma. Jafnframt mun Stefán S. Stefánsson ljá kórnum spuna sinn á saxófón við sum verkanna. 

Slíka tónlist er ekki hægt að flytja án undirbúnings. Septembermánuður fór í nótnastagl en fyrstu helgina í október brugðum undir okkur betri fótunum og brunuðum í æfingabúðir á þeim kyngimagnaða stað Hellnum á Snæfellsnesi. Hauststemningin, með allri sinni litadýrð bæði á himni sem jörðu, var nær ólýsanleg og allur viðgjörningur staðarhaldara, bæði þessa heims og annars, var til mikils sóma. Við æfðum langt fram á föstudagskvöldið og frá morgni til kvölds á laugardeginum, nema hvað við gengum um miðjan dag í blíðviðrinu út á Arnarstapa.

Kvöldvakan var með þjóðlegu ívafi þar sem svipir liðinna tíma reikuðu um sali. Þar komu m.a. Bárður Snæfellsáss, Kolbeinn Jöklaskáld og Þórður á Dagverðará við sögu og síðast en ekki síst astraltertu gubbandi geimverur. En hætta ber hverjum leik þá hæst hann ber og allar fórum við snemma í háttinn til þess að vera nú með á nótunum daginn eftir.

Seinnipart sunnudagsins kvöddum Snæfellsnesið útsungnar og með söknuði og keyrðum aftur inn í hversdagslegan veruleikan hér fyrir sunnan. 

Nú er uppáhalds hátíðin okkar að ganga í garð og töfrarnir á næsta leiti, það eru dásamlegir tónleikar framundan. Ef þið viljið njóta þeirra með okkur má nálgast miða í Domus Vox Laugarvegi 116 (sími: 511 3737), hjá kórfélögum og við innganginn.

Að tónleikunum loknum mun Margrét kórstjóri árita da capo, nýútkomna ljósmyndabók Vox feminae.

Lesa meira

Kvennakór Akureyrar tekur þátt í kóramóti

21. október 2010

Kvennakór Akureyrar tekur þátt í kóramóti sem haldið er í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri laugardaginn 23. október.  Alls taka 24 kórar þátt í dagskránni sem stendur frá kl. 10:00 til 18:30. Kórarnir, sem eru af öllum stærðum og gerðum  af starfssvæði Eyþings koma saman í Hofi og flytja ljúfa tóna frá morgni til kvölds. Hver kór syngur í 20 mínútur og í lokin sameinast þeir og syngja allir saman. Sungið verður í salnum sem fengið hefur nafnið Hamraborgin og er hann opinn gestum og gangandi á meðan á dagskránni stendur.  

Á vefsetrinu Hof menningarhús má sjá nánar hvaða kórar koma fram og niðurröðun þeirra.

Lesa meira

Fréttir frá Landsmótsnefnd á Selfossi

19. október 2010

Nú höfum við í Jórukórnum á Selfossi tekið upp þráðinn eftir gott sumarfrí og hafið æfingar undir styrkri stjórn Helenu Káradóttur sem tók aftur við kórnum haustið 2009 eftir 5 ára hlé.  En verkefni vetrarins eru ekki bara söngurinn,  einnig erum við með það spennandi verkefni að undirbúa Landsmótið íslenskra kvennakóra næsta vor.  Þetta er krefjandi verkefni sem við setjum allan okkar metnað í og hlökkum til að taka á móti ykkur hér á Selfossi 29. apríl – 1. maí 2011.  Við erum sem sagt að vinna á fullu að skipulagningu mótsins, vinnuhóparnir eru að verða klárir, landmótslagið er í vinnslu og sameiginlegu lögin eru að komast á hreint.

Við í landsmótsnefndinni munum mæta á aðalfund Gígjunnar 23. október og vera þar með kynningu á mótinu.  Það væri gott að fá upplýsingar, annað hvort á fundinum eða fljótlega eftir hann, um hvaða kórar stefna að því að mæta á mótið. Endanleg skráning og greiðsla staðfestingagjalds fer síðan fram síðar í vetur. Nú þegar hafa nokkrir kórar haft samband og tilkynnt þátttöku. Þetta lítur því alls saman mjög vel út.

Að lokum viljum við benda á nýtt gistiheimili hér á Selfossi sem tekur um 60 manns. Það er staðsett við aðalgötu bæjarins og er hægt að finna upplýsingar um það á þessu vefsetri.  Við höfum samið við eigandann að gisting í upp á búnu rúmi verði 3.000 kr fyrir konu og morgunverður á 1.000 kr.

Lesa meira

Fréttir af Kvennakór Akureyrar

13. október 2010


Laugardaginn 2. október var haldinn æfingadagur í Valsárskóla á Svalbarðseyri.  Æfingar hófust kl. 9 um morguninn og stóðu til kl. 17:30.
Að þessu sinnu fékk kórinn góðan gest, því að Margrét Bóasdóttir, sópransöngkona og margreyndur og lærður kórstjóri var Daníel til aðstoðar.
Það er ekki ofsögum sagt að þetta kom mjög vel út, því Margrét fræddi kórkonur um ýmis praktísk atriði í söngnum og leiðbeindi einnig um það sem betur mátti fara.

Í kaffi og matarhléum sáu kvenfélagskonur á Svalbarðsströnd um það að enginn væri svangur og voru veitingarnar hjá þeim aldeilis frábærar.
Framundan hjá kórnum er svo þátttaka í kórahátíð í Menningarhúsinu Hofi 23. október, en þar munu 27 kórar af öllum stærðum og gerðum koma fram frá því kl. 10 um morguninn og syngja síðan saman að lokum um kl. 19:00 21. nóvember verða svo árlegir styrktartónleikar fyrir Mæðrastyrksnefnd Akureyrar haldnir í Akureyrarkirkju og verður nánar sagt frá því síðar.

Lesa meira
  • Fyrri
    • 1
    • ..
    • 85
    • 86
    • 87
    • 88
    • 89
    • 90
    • 91
    • 92
    • 93
    • 94
    • 95
    • ..
    • 189
  • Næsta

Eldri fréttir

  • Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
    31. ágúst 2022
  • Landsmóti frestað til 2023
    25. janúar 2021
  • Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
    10. september 2020
  • Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
    11. júní 2020
  • Landsmóti Gígjunnar frestað
    14. mars 2020
  • Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
    11. febrúar 2020
  • Jólakveðja
    25. desember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
    20. nóvember 2019
  • Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
    19. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
    18. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Léttsveitarinnar
    13. nóvember 2019
  • Kvenna megin
    1. nóvember 2019
  • Aðalfundur Gígjunnar 2019
    28. október 2019
  • Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
    8. maí 2019
  • Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
    3. maí 2019
  • Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs
    29. apríl 2019

Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra

  • Kleppsvegur 132, 104 Reykjavík
  • gigjan2003@gmail.com
  • 847 1724
  • 690403 3660
© 2025 Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra