Kvennakór Suðurnesja heldur vortónleika í hinum nýja sal, Bergi, í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ mánudaginn 5. maí og miðvikudaginn 7. maí og hefjast báðir tónleikarnir kl. 20:00.
Dagskrá tónleikanna litast af því að kórinn mun í haust taka þátt í hátíð Leifs Eiríkssonar sem haldin er árlega í Minneapolis í Bandaríkjunum og verður Kvennakór Suðurnesja fyrsti íslenski kórinn til að koma fram á þessari hátíð. Kórinn verður því á þjóðlegu nótunum og syngur eingöngu íslensk lög á tónleikunum; þjóðlög, ættjarðarlög, dægurlög og lög eftir íslensk samtímaskáld.
Stjórnandi Kvennakórs Suðurnesja er Dagný Þórunn Jónsdóttir og meðleikari á píanó er Geirþrúður Fanney Bogadóttir.
Kórkonur taka sér ýmislegt fyrir hendur í fjáröflunarskyni til að fjármagna starfsemi kórsins og ferðina sem framundan er. Þær hafa m.a. tekið að sér hlutverk í leikverkinu Djöfulgangi eftir framandverkaflokkinn Kviss Búmm Bang og aukahlutverk í kvikmyndinni Afinn sem frumsýnd verður í haust. Síðastliðið sumar tóku kórkonur að sér undirbúning og skipulagningu bæjarhátíðarinnar Sandgerðisdaga sem haldin er í lok ágúst ár hvert í Sandgerði og hefur kórinn gert samkomulag við Sandgerðisbæ um að endurtaka leikinn í ár. Mörg undanfarin ár hefur Reykjanesbær gert þjónustusamning við kórinn og stutt myndarlega við starfsemi hans. Auk þess hefur verið leitað til fyrirtækja eftir styrkjum og kunna kórkonur þeim sem styrkt hafa starfsemi kórsins miklar þakkir fyrir stuðninginn.
Tónleikarnir verða sem áður segir í Bergi í Hljómahöllinni mánudaginn 5. maí og miðvikudaginn 7. maí og hefjast kl. 20:00 bæði kvöldin. Forsala aðgöngumiða er hjá kórkonum og á netfanginu kvennakorsudurnesja@gmail.com. Miðaverð í forsölu er 1500 kr. en 2000 kr. við innganginn.