• Fréttir
  • Tónlistin
    • Útgáfa
      • Freyjukórinn
      • Kvk Akureyrar
      • Kvennakór Suðurnesja
      • Norðurljós
      • Kvk Kaupmannahöfn
      • Léttsveit Rvíkur
      • Kvk Ljósbrá
      • Gospelsystur
      • Seljur
      • Lillukórinn
      • Ymur
      • Kvk Garðabæjar
      • Kvk Hafnarfjarðar
      • Jórukórinn
      • Kvk Reykjavíkur
      • Vox Feminae
    • Landsmót
      • Árið 2020 - Reykjavík
      • Árið 2017 - Ísafjörður
      • Árið 2014 - Akureyri
      • Árið 2011 - Selfoss
      • Árið 2008 - Hornafjörður
      • Árið 2005 - Hafnarfjörður
      • Árið 2002 - Reykjanesbær
      • Árið 1999 - Siglufjörður
      • Árið 1997 - Reykholt í Borgarfirði
      • Árið 1995 - Reykjavík
      • Árið 1992 - Ýdölum
    • Aðildakórar
      • Fyrrverandi aðildarkórar
    • Heiðursviðurkenningar
      • Hrönn Hjaltadóttir
      • Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
      • Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
      • Gróa María Þorvaldsdóttir
      • Sigríður Anna Ellerup
      • Guðrún Ósk Sæmundsdóttir
      • Heiða Gunnarsdóttir
      • Margrét Pálmadóttir
      • Margrét Bóasdóttir
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
      • Stjórn Gígjunnar 2018-2019
      • Stjórn Gígjunnar 2017-2018
      • Stjórn Gígjunnar 2016-2017
      • Stjórn Gígjunnar 2015-2016
      • Stjórn Gígjunnar 2014-2015
      • Stjórn Gígjunnar 2013-2014
      • Stjórn Gígjunnar 2012-2013
      • Stjórn Gígjunnar 2011-2012
      • Stjórn Gígjunnar 2010-2011
      • Stjórn Gígjunnar 2009-2010
      • Stjórn Gígjunnar 2008-2009
      • Stjórn Gígjunnar 2007-2008
      • Stjórn Gígjunnar 2006-2007
      • Stjórn Gígjunnar 2005-2006
      • Stjórn Gígjunnar 2004-2005
      • Stjórn Gígjunnar 2003-2004
  • Hafa samband
  • Fréttir
  • Forsíða
  • Hafa samband
  • Tónlistin
    • Útgáfa
    • Landsmót
    • Aðildakórar
    • Heiðursviðurkenningar
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
  • 30074169_1661176133951423_1871409583_o

    Landssamband íslenskra Kvennakóra

  • Freyjukórinn
  • jorukorinn2017(1)
  • Kvennakór Reykjavíkur
  • Vortonleikar_2015_Gugga
  • Kvennakor Gardabaejar 1
  • Cantabile1
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Vortónleikar Kvennakórs Akureyrar

Vortónleikar Kvennakórs Akureyrar

24. maí 2012

Vortónleikar Kvennakórs Akureyrar eru tileinkaðir söngför til Kanada á komandi sumri.

Kvennakór Akureyrar er nú á 11. starfsári og hefur í vetur haldið þrenna tónleika. Fyrstir voru 10 ára afmælistónleikar í nóvember, síðan árlegir tónleikar til styrktar Mæðrastyrksnefnd fyrir jólin og nú fyrir stuttu tónleikar á Siglufirði með Karlakór Akureyrar-Geysi og Karlakór Siglufjarðar.

Nú er komið að fjórðu tónleikunum, en það eru hinir árlegu vortónleikar sem að þessu sinni verða haldnir í Laugarborg þann 28. maí.

Kórinn stefnir í ágúst á sína þriðju tónleikaferð til útlanda. Árið 2005 var farið til Slóveníu, 2008 til Eistlands en nú er förinni heitið á Íslendingaslóðir í  Kanada. Kórinn mun koma fram á Íslendingadeginum í Gimli en heldur auk þess tónleika í Riverton og Minneapolis.

Söngskráin á tónleikunum er afar fjölbreytt og má þar finna bæði íslensk og erlend lög, allt frá þjóðlögum til nýrra tónsmíða og þarna má m.a. finna sýnishorn af því sem kórinn ætlar að flytja fyrir frændur okkar í Vesturheimi. Má þar m.a. nefna Ísland ögrum skorið, God save the Queen, ítalska lagið Con te Partiro, þjóðsöng Kanada og Haust á Akureyri, en það er lag og ljóð Akureyringanna Birgis Helgasonar og Arnar Snorrasonar.

Í upphafi og á milli laga á tónleikunum verða smá innslög með ýmsum fróðleik sem tengjast Vestur-Íslendingum á einhvern hátt. Stjórnandi Kvennakórs Akureyrar er Daníel Þorsteinsson og mun hann einnig annast undirleik.

Tónleikarnir verða haldnir í Laugarborg annan í hvítasunnu, þann 28. maí kl. 15:00. Miðaverð er 2000 krónur, en frítt fyrir 14 ára og yngri. Því miður er ekki hægt að taka við greiðslukortum en að tónleikum loknum verður gestum boðið upp á kaffi og vöfflur.

Eldri fréttir

  • Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
    31. ágúst 2022
  • Landsmóti frestað til 2023
    25. janúar 2021
  • Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
    10. september 2020
  • Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
    11. júní 2020
  • Landsmóti Gígjunnar frestað
    14. mars 2020
  • Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
    11. febrúar 2020
  • Jólakveðja
    25. desember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
    20. nóvember 2019
  • Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
    19. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
    18. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Léttsveitarinnar
    13. nóvember 2019
  • Kvenna megin
    1. nóvember 2019
  • Aðalfundur Gígjunnar 2019
    28. október 2019
  • Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
    8. maí 2019
  • Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
    3. maí 2019
  • Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs
    29. apríl 2019

Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra

  • Kleppsvegur 132, 104 Reykjavík
  • gigjan2003@gmail.com
  • 847 1724
  • 690403 3660
© 2025 Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra