Aðalfundur Gígjunnar var haldinn laugardaginn 26. október í söngskólanum Domus Vox. Auk venjulegra aðalfundarstarfa var heiðursviðurkenning Gígjunnar afhent en að þessu sinni var það Gróa María Þorvaldsdóttir úr Kvennakór Reykjavíkur sem hlaut viðurkenninguna. Fulltrúar Kvennakórs Akureyrar héldu síðan kynningu á Landsmóti íslenskra kvennakóra sem verður haldið á Akureyri helgina 9. - 11. maí 2014.
Stjórn Gígjunnar
Á fundinum var kosin ný stjórn Gígjunnar en hana skipa þær Þórhildur G. Kristjánsdóttir formaður, Kvennakór Hornafjarðar, Steiney Halldórsdóttir og Ragnheiður Helgadóttir úr Kvennakór Hafnarfjarðar, Dagbjört Ottósdóttir, Kvennakórnum Léttsveit Reykjavíkur og Guðlaug Ásgeirsdóttir, Kvennakórnum Heklunum. Í varastjórn eru þær Snæfríð Egilson og Anna Breiðfjörð Sigurðardóttir úr Kvennakór Akureyrar og Kolbrún Halldórsdóttir, Kvennakór Reykjavíkur. Skoðunarmenn reikninga eru þær Margrét Hreinsdóttir, Kvennakór Reykjavíkur og Jóna Björg Kristinsdóttir, Kvennakórnum Ym.
Anna Laxdal Þórólfsdóttir, Kvennakór Reykjavíkur, sem hefur gegnt embætti formanns síðustu tvö árin, Dagný Þrastardóttir, Kvennakór Ísafjarðar, meðstjórnandi og Anna Guðrún Gylfadóttir, Kvennakór Ísafjarðar, varamaður í stjórn, gengu úr stjórn á fundinum. Gígjan færir þeim bestu þakkir fyrir þeirra störf.
Heiðursviðurkenning Gígjunnar
Heiðursviðurkenning Gígjunnar var nú afhent fjórða árið í röð. Hugmyndin með afhendingu hennar er að vekja athygli á því hversu gott og fórnfúst starf margar kórkónur vinna í sínum kórum. Án þessara kvenna væri starf kvennakóra ekki mögulegt. Þetta eru sannkallaðar hvunndagshetjur.
Það var Gróa María Þorvaldsdóttir úr Kvennakór Kópavogs sem hlaut heiðursviðurkenningu Gígjunnar 2013. Hér á eftir fer umsögn Kvennakórs Kópavogs um Gróu:
Gróa María er einn af stofnfélögum og hefur starfað með Kvennakór Kópavogs frá 2002. Hún hefur verið virk í starfi kórsins frá upphafi og setið í stjórn og ýmsum nefndum hans og ávallt leyst mál kórsins á farsælan hátt. Gróa María ber með sér léttleika og jákvæðni sem nýtist vel í kórstarfinu og hefur unnið ötullega að farsæld og framgangi hans. Hún er einnig ein af þeim konum sem alltaf eru boðnar og búnar til að koma til aðstoðar þegar krefjandi verkefni kalla á aukavinnu.
Gróa María var einn hugmyndasmiða að styrktartónleikunum Hönd í Hönd sem kórinn hefur haldið fyrir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs undanfarin fjögur ár. Þetta árið verða fimmtu tónleikarnir haldnir 3. nóvember. Hugmyndin að þessum tónleikum var bág staða margra fjölskyldna í kjölfar bankahrunsins 2008. Vildu kórkonur finna vettvang til að styðja við bæjarbúa í því erfiða ástandi sem skapaðist þá. Á þessum árum hefur Kvennakór Kópavogs fengið til liðs við sig fjölmarga þekkta listamenn og hefur styrkur til Mæðrastyrksnefndarinnar verið álitlegur ár hvert. Það er ekki síst að þakka konum eins og Gróu Maríu en framlag hennar hefur haft mikil áhrif á hve vel heppnaðir þessir tónleikar hafa verið ár eftir ár.
Stjórn Kvennakórs Kópavogs vill þakka Gróu Maríu fyrir þá velvild og umhyggju sem hún sýnir samfélaginu og fórnfúst og gott starf fyrir kórinn sinn. Við viljum því leggja til að hún fái heiðursviðurkenningu Gígjunnar 2013.
Landsmót íslenskra kvennakóra á Akureyri 9. - 11. maí 2014
Þær Snæfríð Egilson og Anna Breiðfjörð Sigurðardóttir frá Kvennakór Akureyrar mættu á fundinn og kynntu Landsmót íslenskra kvennakór sem verður haldið á Akureyri helgina 9. - 11. maí 2014.
Kynninguna má skoða hér.